Bókanir af fundi borgarráðs í dag vegna fyrirætlana meirihlutans um að ráða inn stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur í fullt starf.
Þær tala fyrir sig sjálfar:
Minnihluti
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna mótmæla harðlega þeirri tillögu að stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur verði gerður að starfandi stjórnarformanni og verði þannig hluti af launuðu stjórnendateymi fyrirtækisins. Þessi ráðstöfun er algjört einsdæmi og í miklu ósamræmi við það eftirlitshlutverk sem stjórnarformanni ber að sinna gagnvart stjórnendum fyrirtækisins, auk þess hlutverks sem hann hefur í stjórn fyrirtækisins. Það vekur einnig furðu að á tímum hagræðingar og sparnaðar, skuli meirihlutinn ákveða að bæta við manni í annars fjölmenna yfirstjórn Orkuveitunnar sem fær þá greitt kr. 920.000,- mánaðarlega. Þessi ákvörðun er í mikilli andstöðu við fyrri stefnumörkun og þá viðleitni hjá Reykjavíkurborg að lækka launa- og stjórnenda-kostnað. Einnig benda fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna á þá lagalegu óvissu sem ríkir um slíka tillögu, enda hafa lög verið samþykkt á Alþingi sem heimila ekki að stjórnarformenn taki að sér önnur störf fyrir félagið.
Meirihluti
Stjórnarformaður OR verður ekki starfandi hluti af framkvæmdastjórn fyrirtækisins eins og gefið er til kynna í bókun minnihlutans. Í raun er furðulegt að minnihlutinn skuli nota það orðalag þvert á ábendingar og staðreyndir málsins. Hið rétta er að meirihlutinn hefur fengið þriggja manna teymi reynslumikils fagfólks til að leiða umfangsmikla endurskipulagningu á starfsemi og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur með því að taka sæti í stjórn fyrirtækisins. Fyrst um sinn verður stjórnarformanni gert kleift að gera það í fullu starfi og munu launakjör hans taka mið af launum næstu undirmanna borgarstjórnans í Reykjavík. Besti flokkurinn og Samfylkingin leggja áherslu á að um tímabundna ráðstöfun er að ræða. Hún er engu að síður nauðsynleg vegna umfangs þeirra brýnu og umfangsmiklu verkefna sem öllum ætti að vera ljóst að ráða þarf fram úr á næstu vikum og mánuðum.
Minnihluti
Fulltrúum Samfylkingar og Besta flokksins er tamt að tala um þriggja manna teymi með sérstakri áherslu á stjórnarformanninn. Hið rétta er að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur er fjölskipað stjórnvald þar sem sex einstaklingar eiga sæti. Hvernig sem hið nýtilkomna fulla starf stjórnarformannsins er skilgreint, er ljóst að þar er verið að fara á svig við anda nýsamþykktra laga sem eiga að aðgreina hlutverk stjórnar og framkvæmdastjórnar. Ekki hefur verið tilgreint hversu lengi þessi ráðstöfun á að vara og er vandséð að ákvörðunin verði dregin til baka í náinni framtíð. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna ítreka að verkefni stjórnar Orkuveitunnar hafa um langt skeið verið umfangsmikil , án þess að nokkurn tíma hafi komið til að greiða einum manni gríðarhá laun til að ráða fram úr þeim.
Meirihluti
Minnihlutinn vill vísa á hlutafélaga lög sem kveða á um að stjórnarformanni sé óheimilt að taka að sér önnur störf fyrir félagið en þau sem teljast eðlilegur hluti starfa hans sem formanns félagsstjórnar. Um það er ekki að ræða í þessu tilviki heldur er þvert á móti það að stjórnarformanni verði gert kleift að sinna starfsskyldum sínum sem stjórnarformanns í fullu starfi, tímabundið. Annað er útúrsnúningur.
Minnihluti
Lagaleg óvissa um málið er aðeins ein hlið þess. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna eru algjörlega á móti ákvörðuninni, telja hana ranga og í raun ekkert annað en pólitíska ráðningu eins af fulltrúum meirihlutans.


Shhh – stjórnarformaður að störfum
Það er líklega öllum óskiljanlegt að formaður stjórnar OR sé ekki starfandi stjórnarformaður heldur í fullu starfi, eins og Dagur B. tók til orða í fréttaviðtali. Starfandi fólk er reyndar ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi. Stjórnarstörf má líta á sem hlutastörf. En stjórnarformaðurinn á að vera í fullu starfi. En ekki starfandi. En fær samt milljón á mánuði. Án þess að vera starfandi en samt í fullu starfi.
Launakjörin eru eiginlega kaptítuli útaf fyrir sig. Haraldur réttlætir laun sín með því að segja að hann voni að þekking sín og reynsla við endurskipulagningu reksturs komi OR til góða og að ábatinn nái að borga upp launin sín og gott betur. Með sömu rökum má auðvitað greiða Steingrími Jóhanni hundruði milljóna enda er fyrirsjáanlegur gríðarlegur hagnaður af því að Steingrímur leysi úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Og gott betur. Þessi rök minna reyndar óþægilega mikið á rök bankastjóra góðæristímans fyrir sínum launum. Þeir reyndar bættu alltaf um betur og minntu á ábyrgðina sem þau báru. Kannski ber Haraldur Flosi enga ábyrgð. Hann er jú ekki starfandi.
Það virðist vera ákveðið fjölskylduáhugamál að tryggja að Haraldur Flosi sé óstarfandi í fullu starfi en bróðir Dags B. hann Gauti B. hefur tjáð sig um skipunina á bloggsíðu sinni. Mærir hann mjög faglegheitin og gerir lítið úr flokksgæðingatali. En Haraldur Flosi sjálfur hefur gert mikið úr sínum hlut í meirihlutaviðræðum og lýst þátttöku sinni í starfi samfylkingar og besta flokksins. Flokksgæðingum sjálfstæðis- og framsóknarflokks nægði fyrir nokkrum árum að fá greitt skv. kjarasamningum. Nú virðist vera risin upp ný kynslóð samfylkingarflokksgæðinga sem krefst ofurlauna.
Einhver kynni að segja að ég máli þetta of dökkum litum. En þá vaknar sú spurning hvað samfylkingunni og besta flokknum gangi til. Er þetta e.t.v. liður því að hækka stjórnalaun á Íslandi af því að þau hafa alltaf verið svo lág? Kannski er það bara stefna þeirra. Það væri þó pólitísk stefna sem hægt væri að hafa skoðun á. Það væru hins vegar ekki rök sem sannfæra mig. Reyndar finnst mér erfitt að sjá hvernig ógalið fólk getur samþykkt að eðlilegt þyki að trúnaðarmaður samfylkingarinnar og besta flokksins, sem óstarfandi stjórnarformaður í fullu starfi, þiggi milljón krónur fyrir störf í almannaþágu.