Að loknu forvali

Niðurstöður forvalsins liggja fyrir. Ég lenti í þriðja sæti og er bæði þakklát og hrærð fyrir stuðninginn og traustið sem mér var sýnt af félagsmönnum. Ég mætti til leiks ókynnt og hef hingað til ekki haft afskipti af stjórnmálum opinberlega. Það var því á brattann á sækja og oft mættu mér margs konar hindranir. Eftir á að hyggja hafa þær hafa þó verið lítilvægar miðað við árangur minn í forvalinu.

Ég vil þakka öllum félagsmönnum Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fyrir stuðninginn og að veita mér brautargengi og sýna mér traust. Ég ætla að gera mitt besta til að standa undir væntingum og ég ætla að gera mitt allra besta í baráttunni um borgina. Vinir og fjölskylda eiga mínar bestu þakkir skyldar fyrir hjálpsemi og stuðning. Svo ekki sé minnst á óþrjótandi þolinmæði og bjartsýni ásamt óbilandi trú á hæfni minni og mannkostum.

Ég hlakka til að takast á við verkefnin framundan og starfa í þágu borgarbúa í anda stefnu Vinstri grænna. Það verður frábært að starfa með góðu fólki sem hefur margt til málanna að leggja og margvíslega og góða reynslu.

Nú er bara að bretta upp ermarnar og einbeita sér að kosningunum í vor. Áfram VG!

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink. Post a comment or leave a trackback: Trackback URL.

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *

*
*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>