Það er líklega öllum óskiljanlegt að formaður stjórnar OR sé ekki starfandi stjórnarformaður heldur í fullu starfi, eins og Dagur B. tók til orða í fréttaviðtali. Starfandi fólk er reyndar ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi. Stjórnarstörf má líta á sem hlutastörf. En stjórnarformaðurinn á að vera í fullu starfi. En ekki starfandi. En fær samt milljón á mánuði. Án þess að vera starfandi en samt í fullu starfi.
Launakjörin eru eiginlega kaptítuli útaf fyrir sig. Haraldur réttlætir laun sín með því að segja að hann voni að þekking sín og reynsla við endurskipulagningu reksturs komi OR til góða og að ábatinn nái að borga upp launin sín og gott betur. Með sömu rökum má auðvitað greiða Steingrími Jóhanni hundruði milljóna enda er fyrirsjáanlegur gríðarlegur hagnaður af því að Steingrímur leysi úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Og gott betur. Þessi rök minna reyndar óþægilega mikið á rök bankastjóra góðæristímans fyrir sínum launum. Þeir reyndar bættu alltaf um betur og minntu á ábyrgðina sem þau báru. Kannski ber Haraldur Flosi enga ábyrgð. Hann er jú ekki starfandi.
Það virðist vera ákveðið fjölskylduáhugamál að tryggja að Haraldur Flosi sé óstarfandi í fullu starfi en bróðir Dags B. hann Gauti B. hefur tjáð sig um skipunina á bloggsíðu sinni. Mærir hann mjög faglegheitin og gerir lítið úr flokksgæðingatali. En Haraldur Flosi sjálfur hefur gert mikið úr sínum hlut í meirihlutaviðræðum og lýst þátttöku sinni í starfi samfylkingar og besta flokksins. Flokksgæðingum sjálfstæðis- og framsóknarflokks nægði fyrir nokkrum árum að fá greitt skv. kjarasamningum. Nú virðist vera risin upp ný kynslóð samfylkingarflokksgæðinga sem krefst ofurlauna.
Einhver kynni að segja að ég máli þetta of dökkum litum. En þá vaknar sú spurning hvað samfylkingunni og besta flokknum gangi til. Er þetta e.t.v. liður því að hækka stjórnalaun á Íslandi af því að þau hafa alltaf verið svo lág? Kannski er það bara stefna þeirra. Það væri þó pólitísk stefna sem hægt væri að hafa skoðun á. Það væru hins vegar ekki rök sem sannfæra mig. Reyndar finnst mér erfitt að sjá hvernig ógalið fólk getur samþykkt að eðlilegt þyki að trúnaðarmaður samfylkingarinnar og besta flokksins, sem óstarfandi stjórnarformaður í fullu starfi, þiggi milljón krónur fyrir störf í almannaþágu.

9 Comments
Nei – maðurinn er skipaður formaður stjórnar OR. Hann á bara að fá greitt samkvæmt því. Og fyrst þú minnist á laun borgarstarfsmanna (sem eru ekki sérstaklega til umfjöllunar í bloggfærslunni) þá gætir mikils ósamræmis þar. Það væri t.d. hægt að laga skekkjuna með því að miða við að lægstu laun væru aldrei meira en þrisvar sinnum lægri en þau sem hæst eru. Hins vegar þarf að leggjast yfir tæknilegar útfærslur á því með aðkomu allra stéttarfélaga. Þessi bloggfærsla beinist síður en svo gegn Haraldi – en þú sérð það væntanlega. Hún beinist að verklaginu og sjálfri ráðningunni og þeirri pólitík sem flokkarnir standa fyrir (eins og t.d. að búa til starf sem að mínu mati er óþarfi). Haraldur er eflaust frábær og faglegur á sínu sviði. Hann getur örugglega vel gegnt þessari stöðu sem formaður stjórnar (og án þess að fá tæpa milljón á mánuði). Ég er ekki pólitískur óvinur neins. Ég er hins vegar pólitísk. Það felur í sér að hafa hugmyndir um samfélagið og hvaða leiðir maður fer til að leysa vanda. Ef það má ekki gagnrýna það sem manni finnst miður fara – þá er verr komið fyrir okkur en ég hélt. Takk fyrir ábendinguna.
Ekki vera súr yfir athugasemdum mínum – í kosmísku samhengi skipta þær væntanlega óverulegu máli – vertu kátur eins og flokkurinn þinn. Gangi þér vel.
(Og eigum við ekki öll skilið að fá laun eins og sviðsstjórar borgarinnar? Ég bara spyr…)
Af hverju er fólk svona hrætt við að fá inn fólk í stjórn sem hefur virkilegan ásetning til þess að breyta, skera niður og hagræða?
Haha. Góður.
Róttækasta breytingin sem lögfræðingur hefur gert er líklega að hækka hjá sér taxtann.
Á maðurinn ekki rétt á því að fá greitt eins og sviðstjóri hjá borginni? Afhverju ekki? Er hann ekki með svipaða ábyrgð? Það er þá kannski kapítuli útaf fyrir sig að lækka laun borgarstarfsmanna, ég hef ekki heyrt minnihlutan mæla því bót. Haraldur hefur ekki farið mikin í fjölmiðlum, það er hinsvegar margt sagt um hann sem ber því mest vitni að hann á núna pólitíska óvini sem hafa hingað til ekki getað komið höggi á BF og reyna þess vegna að gera sem mest úr þessu. Átakapólitíkin sem BF sagði sig úr er söm við sig, “sigrum óvinin hvernig sem við förum að því!” Núna eru það ‘ofurlaunin’ … þá eru sviðstjórar hjá borginni líka á ofurlaunum ekki satt, og þeir eru margir, ekki eru neinar upphrópanir yfir því?
Hækka taxtann? Tékkaðu á taxtanum hjá OR áður en þú fullyrðir um það.
Ef Haraldur á að fá greitt samkvæmt fyrri taxta stjórnaformanns HR sem var með að ég held 250.000 kr fyrir 20% starf þá ættu það að 1.250.00 kr í mánaðarlaun í 100% starfi ef ég kann að reikna. Ef hann á að fá greitt samkvæmt launaskala OR þá væri það líklega mun meira, framkvæmdastjórar þar hafa u.þ.b. 1.500.000 kr á mánuði þar, forstjóri um 2.000.000, þessar tölur eru amk mjög nálægt því að vera réttar að ég tel. En hann er starfsmaður Rvk. En ég er ekki viss um að fólk sem þusar um ofurlaun hafi nokkurn áhuga í raun og veru á þessum ’smáatriðum’ það er svo miklu áhrifaríkara að fullyrða vitleysuna nógu oft þangað til fólk fer að trúa henni. Og við verðum víst að fá að vera ósammála um það að það sé ekki þörf á manni í fullt starf við að taka þarna til. Það þyrfti marga menn í þá viðskiptafræðilegu, hugmyndafræðilegu og verklagsfræðilegu endurnýjun og uppstokkun sem þarf að eiga sér stað ef allt á ekki að fara fjandans til, OR er tæknilega gjaldþrota, það vita það allir. Ættum við ekki að reyna að vera sammála um það og borga þeim sem leggur í þá kleppsvinnu (og mannorðsaftökur) sæmilega?
Og hvað varðar muninn á því sem þú ert að segja og því sem ‘andstæðingar’ BF segja í besta falli afar ógreinilegur.
Það minntist enginn á taxtann hjá OR fyrr en þú gerðir það hugsandi minn. Ég var vitaskuld að vísa í taxta lögmanna.
Varðandi „Á maðurinn ekki rétt á því að fá greitt eins og sviðstjóri hjá borginni?“
þá er svarið augljóslega nei. Sviðsstjórar og stjórnarmenn er bara tvennt ólíkt. Þess fyrir utan eru sviðsstjórar Reykjavíkurborgar varla á forsætisráðherra launum.
Varðandi samanburðinn við HR þá er hann bara eins og út úr kú og samanburðurinn við framkvæmdastjóra er eins bara samanburður á eplum og appelsínum. Ef það er þörf á þessari miklu tiltekt sem þú minnist á þá er eðlilegast að stjórnin reki einfaldlega framkvæmdastjórann og ráði nýjan sem hún treystir. Frekar en að setja stjórnarformanninn í það að horfa stöðugt yfir öxlina á honum.
Og varðandi þetta með besta flokkinn þá er það ótrúlegt gagnrýnileysi ef mönnum finnst það bara sjálfsagt og eðlilegt að margfalda laun stjórnarformanns OR upp í mögulega hæstu stjórnarlaun á Íslandi til handa stuðningsmanni samfylkingarinnar og besta flokksins. Að því leyti sem besti flokkurinn er viðbragð við spillingu og pólítík fortiðarinnar hefur hann með þessu algerlega brugðist.
Hugsandi: Sæmileg laun fyrir kleppsvinnu og mannorðsaftökur? Andstæðingur BF? Ég veit ekki hvaða blogg þú gerir athugasemdir við en það er ekki mitt. Og takk fyrir að gera mér upp skoðun á BF. Ég er hér almennt að tala um ákvörðun meirihlutans. En það er gott að fá það á hreint að þessi hugmynd um starfandi stjórnarformann hafi komið frá BF.
Er það þá komið á hreint?:) I rest my case eins og þeir segja, þá ertu komin með ‘eitthvað á þá’…hehehe. Alveg stórskemmtilegt hvernig flettist ofan af tíkinni í pólitíkinni:) – ég er hér að vísa í þau einkenni pólitíkur að vilja hafa ‘andstæðinginn undir’ en ekki höfund bloggs að sjálfsögðu.
Mér leiðist bara að þegar einhver vill raunverulega breyta e-u þá rís upp mótmælaalda úr ólíklegustu áttum, má þessi ákvörðun ekki fá að sanna sig, þó ‘óhefðbundin’ sé? Vilja ekki allir að þarna sé tekið til? Ég held það einhvernveginn, umræðan fer bara öll í það að pota í ákvörðunina með allskyns rökum út og suður, eins og sá sem ráðin er í þetta starf megi ekki hafa góð laun – af því að það hefur ekki verið gert áður? Afþví að stjórnarformenn OR hafa verið að standa sig svo vel hingað til í lægra vinnuhlutfalli? Þetta er bara enn ein birtingarmynd þess að það þarf að rífa hlutina niður ef það er ekki ‘mitt fólk’ á bak við það. Sorglegt en satt.
119 Trackbacks
tests for assessing anxiety…
Buy_now it…
thyroid scan image…
Buy_generic pills…
dehli meats during pregnancy…
Buy_now it…
permanent removal of adult acne scars…
Buy_generic meds…
side effects of luvox…
Buy_now…
nicotrol inhaler buy free sample oregon…
Buy_now…
decongestants hypertension safe…
Buy_now it…
enhancement drugs…
Buy_no prescription…
imodium during pregnancy…
Buy_generic meds…
diabetes popcorn…
Buy_generic pills…
drug test company…
Buy_without prescription…
tylenol without codeine related constipation…
Buy_it now…
barbecue interactions with drugs…
Buy_generic meds…
remeron dreams…
Buy_it now…
fruity taste and diabetes…
Buy_it now…
green@mountain.coffee.cafe.club” rel=”nofollow”>……
Buygeneric meds…
side@effects.of.protonix.after.it.has.been.stopped” rel=”nofollow”>……
Buynow it…
best@medicare.plan.d.for.nexium.40.mg” rel=”nofollow”>..…
Buygeneric meds…
infant@prevacid.dose” rel=”nofollow”>.…
Buygeneric drugs…