Category Archives: Pólitík

Umræður um tónlistarskólana í borgarstjórn

Forseti, ágætu borgarbúar og borgarfulltrúar. Undanfarið hefur mér verið hugsað um sögu sem ég heyrði eitt sinn. Ég veit svo sem ekki hvort hún er sönn eða hvort ég hafi hana rétt eftir. Engu að síður er hún góð og mig langar að deila henni með ykkur. Fyrir mörgum áratugum síðan mætti stjörnuáhugamaður nokkur, sem skuldaði allmikið [...]
Also posted in Borgin, Menntun, Ræður | 83 Comments

Jómfrúarræðan í borgarstjórn

Seinni umræður um fjárhagsáætlun í borgarstjórn þ. 14. desember 2010. Forseti – ágætu borgarfulltrúar – góðu Reykvíkingar Stefna Vinstri grænna í menntamálum Sonur minn Styrkár Flóki, sem er tæplega tveggja ára, hefur gaman af sögunum um Barbapabba. Það hef ég líka. Við spænum í okkur bækurnar af bleika vinalega og úrræðagóða fyrirbærinu sem varð til við heldur óvenjulegar [...]
Also posted in Borgin, Ræður | 1 Comment

Shhh – stjórnarformaður að störfum

Það er líklega öllum óskiljanlegt að formaður stjórnar OR sé ekki starfandi stjórnarformaður heldur í fullu starfi, eins og Dagur B.  tók til orða í fréttaviðtali. Starfandi fólk er reyndar ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi. Stjórnarstörf má líta á sem hlutastörf. En stjórnarformaðurinn á að vera í fullu starfi. En ekki starfandi. En fær samt [...]
Also posted in Borgin | 128 Comments

Meirihluta bitlingur

Bókanir af fundi borgarráðs í dag vegna fyrirætlana meirihlutans um að ráða inn stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur í fullt starf. Þær tala fyrir sig sjálfar: Minnihluti Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna mótmæla harðlega þeirri tillögu að stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur verði gerður að starfandi stjórnarformanni og verði þannig hluti af launuðu stjórnendateymi fyrirtækisins. Þessi ráðstöfun er algjört einsdæmi og í [...]
Also posted in Borgin | 131 Comments

Gjaldskrárhækkunarþörf og arðsemiskrafa

Í fjölmiðlum dagsins rak ég augun í orðskrípið gjaldskrárhækkunarþörf.  Án þess að velta mér frekar upp úr þeirri ambögu þá langar mig að velta fyrir mér þörfinni á að hækka gjaldskrár Orkuveitunnar. Skömmu eftir kosningar kom svar við  fyrirspurn Sigrúnar Elsu Smáradóttur um gjaldskrár Orkuveitu Reykjavíkur og hversu mikið þyrfti að hækka þær til þess að [...]
Also posted in Borgin | 74 Comments

Varð göfugmennskan okkur að falli?

Lýðræðishugmyndin sem er ríkjandi inna VG er falleg og göfug. Hún gengur út á það að fólk sé upplýst og að atkvæðagreiðsla leiði fram þjóðarviljann. Nema hvað. Þannig á að una dómi kjósenda og líta svo á að niðurstaðan sé rétt – í einhverjum skilningi. Innan VG er afstaðan til lýðræðisins ekki jafn kaldlynd og [...]
Posted in Pólitík | 81 Comments

Prinsipp fjúka – fylgið ekki

Sjálfstæðismenn hafa rekið Reykjanesbæ illa. Svo illa að þeir neyddust til að selja hlut sinn í HS-orku. Þeir eru á kúpunni og skítsama um prinsipp. Selja og græða – eins og sjálfstæðismönnum einum er lagið.  Ef salan hefði ekki komið til hefði verið geigvænlegt tap á rekstri Reykjanesbæjar. Svona vilja VG ekki standa að málum. Vinstri [...]
Posted in Pólitík | 4 Comments

Skrímslaprófkjör

Á meðan frambjóðendur sjálfstæðisflokks og samfylkingar keppast um hylli kjósenda sinna með hressilegum fjárútlátum, fer Vinstrihreyfingin – grænt framboð inn í forvalsbaráttuna með fyrirhyggju og sparnað í veganesti. Á undanförnum árum hefur prófkjörsbaráttan stigið í takt við taumlausa útþenslu og bruðlið hefur stigmagnast. Kostnaður sumra frambjóðenda hleypur á milljónum. Þess má geta að hámarksstyrkjaupphæð til [...]
Posted in Pólitík | Comments closed