Að loknu forvali
Niðurstöður forvalsins liggja fyrir. Ég lenti í þriðja sæti og er bæði þakklát og hrærð fyrir stuðninginn og traustið sem mér var sýnt af félagsmönnum. Ég mætti til leiks ókynnt og hef hingað til ekki haft afskipti af stjórnmálum opinberlega. Það var því á brattann á sækja og oft mættu mér margs konar hindranir. Eftir [...]
Posted in Óflokkað Leave a comment
Praktískar upplýsingar fyrir forvalsdag
Það hefur vonandi ekki farið fram hjá félagsmönnum VG að forvalskosningin er á laugardaginn, 6. febrúar. Hún fer fram í Kvennaskólanum við Þingholtsstræti á milli klukkan 10 og 18. Hér er mynd sem ég fann á vef Kvennaskólans og sýnir staðsetninguna ágætlega: http://kvenno.is/pages/16. Kosningin fer fram í Uppsölum. Húsnæðið er gegnt breska og þýska sendiráðinu [...]
Posted in Óflokkað Leave a comment
Rökræður
Í einkasamtölum samþykkja allir gildi gagnrýninnar hugsunar og mikilvægi þess að menn setji mál sitt skýrt og skipulega fram, með rökstuðningi. Á opinbera sviðinu er gildi gagnrýninnar hugsunar hins vegar ekki alltaf í hávegum höfð. Og þegar maður fylgist með þjóðmálaumræðu dagblaðanna finnst manni oft verulegur skortur á gagnrýninni hugsun.
Stórir stjórnmálaflokkar sem skreyta sig [...]
Posted in Óflokkað Leave a comment
Ætli kosningar séu í vændum?
Í dag fékk ég álagningarseðil fasteignagjalda 2010 inn um lúguna. Það er svo sem ekki í frásögu færandi nema neðst á yfirlitinu er orðsending frá borgarstjórn. Þar stendur:
Borgarstjórn Reykjavíkur ákvað þann 3. desember 2009 að halda hlutfalli fasteignaskatta 2010 óbreyttu frá fyrra ári.
Ætli kosningar séu í vændum og þarna sé á ferðinni dulinn kosningaáróður [...]
Posted in Óflokkað Leave a comment
Fiskbollur í dós
Það er skemmtilegt hvernig hægri-hugsunin kemur upp um sig í ýmsum ákvörðunum sem snúa að mannfólkinu, eins og til dæmis þegar rætt er um ölmusur og stimpilklukkur. Fjármagnið er öllu ofar og allt skal mælt eftir mælistiku fjármagnsins. Þessar mælingar kalla svo á sérstaka orðræðu þar sem rætt er um „fjárfestingu í menntun“, „mannauð“ og [...]
Posted in Menntun Leave a comment
Skrímslaprófkjör
Á meðan frambjóðendur sjálfstæðisflokks og samfylkingar keppast um hylli kjósenda sinna með hressilegum fjárútlátum, fer Vinstrihreyfingin – grænt framboð inn í forvalsbaráttuna með fyrirhyggju og sparnað í veganesti. Á undanförnum árum hefur prófkjörsbaráttan stigið í takt við taumlausa útþenslu og bruðlið hefur stigmagnast. Kostnaður sumra frambjóðenda hleypur á milljónum. Þess má geta að hámarksstyrkjaupphæð til [...]
Posted in Pólitík Comments closed
Kennarar með skóflu?
Að vinna og iðja eitthvað er mikilvægt fyrir sjálfsmynd okkar allra. Ein fyrsta spurning okkar þegar við hittum einhvern er oftar en ekki: „Hvað gerir þú?“ Heiðarleg vinna er okkur því mjög mikilvæg, bæði fyrir sjálfsmynd okkar og lífsfyllingu og afkomu. Rannsóknir benda til þess að fátt sé jafn mikið áfall fyrir sálarlíf fólks og [...]
Posted in Atvinna Leave a comment
Enn um ungt og greint fólk
Ég var nýlega spurð að því hvað fær ungt og sæmilega greint fólk til þess að freista þess að hasla sér völl í pólitík. Ástæður þeirra sem það reyna eru vafalítið margar og um þær ætla ég ekki að fjölyrða hér. Hins vegar endurspeglast í spurningunni ákveðið viðhorf til stjórnmála sem ætti vitaskuld ekki að [...]
Posted in Óflokkað Leave a comment

Óræktargarður í Reykjavík